|
Fimmtudagur, 29. desember 2011 22:04 |
|
Við óskum vinum og viðskiftavinum gleðilegs árs og þökkum um leið fyrir viðskiftin á árinu sem er að líða, við eru stolt og ánægð með góðan árangur okkar skjólstæðinga á árinu sem senn er á enda og vonumst til að sjá sem flesta af þesum snillingum aftur sem ekki eru búnir að yfirgefa Ísland á árinu.
Með bestu kveðjum Ingimar,Emilia og Addi.

Mynd tekin í Lýtingsstaðahrepp á leið á landsmót í sumar
|
|
Laugardagur, 19. nóvember 2011 23:58 |
|
Þá er frumtamningum lokið þetta haustið, við erum mjög ánægð með útkomuna mörg spennandi
tryppi meðal annars stóðhestur undan Glampa Vatnsleysu og geldingar undan Töfra Selfossi og
Flipa frá litlu Sandvík.
Sofie Sjödin sá um frumtamningar í haust og stóð sig frábærlega tryppin vel tamin og treysta
knapanum mjög vel,við þökkum henni kærlega fyrir góða vinnu.

Ægir frá Vatnsleysu 3 vetra unda Glampa og Æsu Adamdóttur frá Meðalfelli.

Taktur glæsilegur 4 vetra foli undan Töfra Selfossi og Rimmu frá Miðsitju.

Fálki 3 vetra undan Flipa Litlu Sandvík og Femínu Töfradóttur frá Stekkum.
|
|
|
Sunnudagur, 13. nóvember 2011 10:22 |
|
Það fjölgar stöðugt hrossunum í tækjaþjálfun, hér er glæsilegi gæðingurinn Símon frá Efri Rauðalæk
mættur hann verður hjá okkur þangað til hann flýgur til Svíþjóðar á nýtt heimili hjá vini okkar Magnúsi
Skúlasyni á Brösarpsgarden.

|
|
Gert klárt fyrir veturinn |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 03. nóvember 2011 21:36 |
|
Í gær tókum við allar folaldsmerarnar heim gáfum ormalyf snyrtum hófa,fax og tagl.
Á myndinin er til vinstri Ópera alsystir Arons með hestfolald undan Smára Skagaströnd
og Venus til hægri alsystir Hugins frá Haga með merfolald undan Krák Blesastöðum.

|
|
Laugardagur, 17. september 2011 16:47 |
|
Síðasta vika Ingimar lauk að heyi á síðasta sviði á þessu ári.
Það er a einhver fjöldi af harður vinna en er þetta ekki sannarlega rómantískt að skoða?
Þá er heyskap lokið í Hólaborg og mikið til af góðum heyjum sem gaman verður að gefa í vetur.

|
|
Mánudagur, 29. ágúst 2011 13:32 |
|
Sjá nýju síðuna "Söluhross" til vinstri í valmyndinni. Meira kemur bráðum :-)

Rán frá Þorkelshóli 2 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 5 |